miðvikudagur, október 26, 2005

úff...

Í haust þegar ég mætti í skólann var ákveðið að flýta verkefnaskilum til að jafna vinnuna yfir önnina, mjög sniðugt ef það hefðu ekki allir kennar tekið þetta upp. Þannig í stað þess að sitja sveitt í nóvember að rembast við að klára verkefnið þá er tíminn runninn upp í október. Þannig að þar er komin ástæða fyrir bloggletinni síðustu daga...

Ég var annars kitluð um daginn og er búin að brjóta heilann um hvað ég get ekki gert...

1. ég get ekki drukkið mjólk eftir síðasta söludag

2. ég get ekki sleppt því að fara á netið í skólanum þegar ég á að vera að læra (eins og til dæmis núna)

3. ég get ekki sleppt að drekka kók þegar ég er heima hjá Drífu

4. ég hef aldrei getað farið í handahlaup

5. ég get ekki sungið

þriðjudagur, október 11, 2005

Dustað rykinu af ferðadraumunum

Nú þegar ég er farin að geta gengið meira, hef ég dustað rykið af draumastöðunum sem mig langar til að fara á. Það eru fjöldamargir staðir sem mig langar til að sjá en það eru nokkrir sem eru efst á óskalistanum...

1. San Fransico og New York

Þetta eru einu borgirnar sem mig langar að sjá í BNA.

2. Nepal
Er mekka gönguferða, það er víst endalaust hægt að labba þar um

3. Egyptaland
Pýramídarnir...

4. Perú
Inkaþorpin, ég hef samt heyrt að það sé betra að vera í góðu formi því maður þarf víst að labba slatta um holt og hæðir áður en maður kemst að þeim

5. Kenía
dýrin... ég heyrði reyndar í fréttunum um daginn að það væri okrað á erlendum ferðamönnum í þjóðgarðana en það er í fínum lagi sérstaklega þar sem peningurinn rennur til þess að vernda svæðið:)

6. Indland

Taj Mahal

7. Beijing

Kínamúrinn er eitt af þessu "must see"

En ef ég tek mið af raunveruleikanum þá eru þetta staðirnir sem ég mun næst berja augum

1. Hvalfjarðargöngin
2. Baula
3. Staðarskálinn
4. Blönduós

Allt mjög spennandi staðir! eða þannig.

þriðjudagur, október 04, 2005

Fallvörn

Þegar ég keypti tölvuna mína þá var Sverrir einnig á sama tíma að fjárfesta í tölvu. Ég varð græn af öfund þegar ég sá gripinn hans en hún var alveg ótrúúúlega flott, talvan mín er ekki flott. Í gær varð ég þó alveg ótrúlega fegin að hafa keypt ljótu tölvuna því hún datt í gólfið og það sér varla á henni:)

SKVÍSUHITTINGUR!
á fimmtudaginn kl: 20:30 í Öskjuhlíðinni.